 |
Nafn 1. gr.
Félagiđ heitir Félag grunnskólakennara og á ađild ađ Kennarasambandi Íslands. Félagssvćđiđ er allt landiđ. Heimili ţess og varnarţing er í Reykjavík.
Hlutverk 2. gr.
Hlutverk félagsins er ađ:
Fara međ málefni félagsmanna Kennarasambands Íslands sem sinna kennslu eđa ráđgjöf í grunnskólum eđa vinna viđ stofnanir og fyrirtćki sem tengjast kennslu- og frćđslumálum,
vera málsvari félagsmanna,
gera kjarasamninga fyrir félagiđ,
halda fundi og námskeiđ fyrir trúnađarmenn,
sjá um kjör fulltrúa á ţing Kennarasambands Íslands,
efla faglega umrćđu međal félagsmanna, vinna ađ ţví ađ enginn starfi viđ kennslu í grunnskóla án kennsluréttinda.
Ađild 3. gr.
Allir sem starfa viđ kennslu eđa ráđgjöf í grunnskólum og eru félagsmenn í Kennarasambandi Íslands eđa vinna viđ stofnanir og fyrirtćki sem tengjast kennslu- og frćđslumálum og Félag grunnskólakennara semur fyrir, skv. lögum nr. 94/1986 eđa samkomulagi viđ viđkomandi launagreiđanda, eru félagar í Félagi grunnskólakennara.
Svćđafélög 4. gr.
Félag grunnskólakennara starfar á eftirtöldum stöđum og svćđum: Reykjavík Vesturlandi Vestfjörđum Norđurlandi vestra Norđurlandi eystra Austurlandi Suđurlandi Vestmannaeyjum Reykjanesi sunnan Kópavogs Kópavogi, Mosfellsbć, Seltjarnarnesi og Kjósarhreppi
Hlutverk svćđafélaga er ađ vera málsvari félagsmanna hvert á sínu svćđi og halda trúnađarmannanámskeiđ, félagsfundi og haustţing í samráđi viđ stjórn Félags grunnskólakennara. Ennfremur, í samráđi viđ stjórn Félags grunnskólakennara, ađ annast kjör fulltrúa á ţing Kennarasambands Íslands. Hvert svćđafélag er tengiliđur smćrri eininga sem starfa vilja í sérstökum félögum innan svćđisins t.d. m.t.t. launagreiđanda. Svćđafélög setja sér lög í samrćmi viđ lög Félags grunnskólakennara og Kennarasambands Íslands.
Félagsmenn í einstökum sveitarfélögum sem hafa sama launagreiđanda geta myndađ formlegt eđa óformlegt kennarafélag.
Ađalfundur 5. gr.
Ađalfundur Félags grunnskólakennara skal haldinn ţriđja hvert ár í tengslum viđ ţing Kennarasambands Íslands. Ađalfundur hefur ćđsta vald í málum félagsins, sbr. ţó 19. gr. Á ađalfundi eiga sćti međ atkvćđisrétti stjórn, formenn svćđafélaga og einn fulltrúi fyrir hverja 50 félagsmenn eđa brot úr ţeirri tölu sem umfram kann ađ vera. Kjörtímabil ţeirra er milli reglulegra ađalfunda félagsins. Stjórnir svćđafélaga annast kosningu ađalfundarfulltrúa. Til ađalfundar skal bođađ međ a.m.k. 6 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á ađalfundi ţurfa ađ berast stjórn félagsins eigi síđar en 5 vikum fyrir ađalfund, sbr. ţó 20. gr. Ađalfundargögn skulu send út međ minnst ţriggja vikna fyrirvara.
Dagskrá ađalfundar 6. gr.
Skýrsla stjórnar
Ársreikningar félagsins
Nefndastörf og tillögur, mál og nefndaálit sem borist hafa tekin til umrćđu
Lagabreytingar
Fjárhagsáćtlun
Kosning nýrrar stjórnar
Kosning stjórnarmanna í Kennarasambandi Íslands
Kosning tveggja skođunarmanna reikninga og eins til vara
Kosning fulltrúa í samninganefnd
Kosning skólamálanefndar
Kosning uppstillingarnefndar og í ađrar trúnađarstöđur sem ađalfundur ákveđur
Önnur mál
Kosning fulltrúa á ţing Kennarasambands Íslands 7. gr.
Stjórn félagsins á fjögurra kosta völ viđ kjör fulltrúa á ţing Kennarasambandsins:
Á fundi (kjörfundi) sem bođađur er međ minnst 10 daga fyrirvara. Heimilt er ađ hafa fleiri en einn kjörfund eđa kjördeildir í félaginu.
Í bréflegri kosningu og fá félagsmenn ţá senda kjörseđla. Ţegar ţeir hafa kosiđ senda ţeir kjörseđilinn til stjórnar/kjörstjórnar félagsins eđa afhenda trúnađarmanni innan tilskilins tíma.
Samkvćmt tillögu félagsstjórnar eđa einstakra félagsmanna. Séu ađeins jafnmargir í kjöri og kjósa á er sjálfkjöriđ.
Rafrćna kosningu samkvćmt reglum sem stjórn FG setur.
Ársfundur 8. gr.
Ţau ár, sem ekki er haldinn ađalfundur skal stjórn félagsins bođa til ársfundar ţar sem m.a. er fjallađ um starfsemi félagsins og starfsáćtlun auk ţess sem reikningar ţess eru lagđir fram. Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, formenn svćđafélaga, skólamálanefnd, samninganefnd og formenn annarra fastanefnda. Stjórn félagsins hefur umbođ til ađ kalla til fleiri fulltrúa ef ţurfa ţykir.
Almennir félagsfundir 9. gr.
Stjórn Félags grunnskólakennara getur bođađ til almennra félagsfunda. Skylt er ađ bođa til almenns fundar ef 10% eđa fleiri krefjast ţess skriflega og tilgreina fundarefni.
Stjórn 10. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn og fimm til vara, formađur, varaformađur, ritari, gjaldkeri og međstjórnandi. Kjörtímabil stjórnar er ţrjú ár. Stjórn og varamenn eru kjörnir á ađalfundi félagsins. Formađur er kosinn sérstaklega en ađrir stjórnarmenn saman og skipta ţeir síđan međ sér verkum. Stjórnin heldur stjórnarfundi svo oft sem ţurfa ţykir.
Hlutverk stjórnar 11. gr.
Stjórn félagsins fer međ ćđsta vald í málefnum félagsins milli ađalfunda. Formađur ber ábyrgđ á allri starfsemi félagsins og hefur yfirumsjón međ rekstri ţess. Varaformađur er stađgengill formanns.
Samráđsfundur 12. gr.
Stjórn félagsins skal bođa til fundar međ formönnum svćđafélaga a.m.k. tvisvar á ári. Samráđsfundur er stjórn til ráđuneytis um stjórnun félagsins, m.a. viđ undirbúning ađalfundar og ársfunda.
Um gjörđarbćkur 13. gr.
Ritari félagsins heldur gjörđarbćkur og fundargerđir skulu samţykktar á stjórnarfundi og undirritađar af ritara og formanni.
Fjárreiđur og bókhald 14. gr.
Ţing Kennarasambands Íslands ákveđur skiptingu félagsgjalda. Gjaldkeri félagsins hefur umsjón međ fjárreiđum ţess og bókfćrslu og leggur fram endurskođađa reikninga á ađalfundi. Auk ţess skal hann gefa stjórn og ársfundi yfirlit yfir stöđu félagsins minnst einu sinni á ári.
Kosning til stjórnar Kennarasambands Íslands 15. gr.
Formađur félagsins situr í stjórn Kennarasambands Íslands en varaformađur er stađgengill hans í forföllum. Auk ţess skal kjósa einn fulltrúa í stjórn Kennarasambands Íslands séu félagsmenn fleiri en 600, tvo séu ţeir fleiri en 1800 og ţrjá séu ţeir fleiri en 5400. Stjórnarmenn Kennarasambands Íslands skal kjósa á ađalfundi félagsins og jafnmarga til vara, sbr. ţetta ákvćđi.
Samninganefnd 16. gr.
Á ađalfundi félagsins skal kjósa fimm fulltrúa og fimm til vara, sem ásamt stjórn félagsins, mynda samninganefnd og fer hún međ gerđ kjarasamninga fyrir félagsmenn, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Samninganefndin skiptir međ sér verkum.
Hlutverk samninganefndar er:
Ađ ganga frá endanlegri kröfugerđ,
ađ annast gerđ kjarasamninga,
ađ taka ákvörđun um hvort efna skuli til atkvćđagreiđslu um verkfall,
ađ taka ákvörđun um hvort undirrita eigi kjarasamning međ fyrirvara um samţykki félagsmanna og um hvort fresta skuli verkfalli.
Samninganefnd hefur samráđ viđ fagfélög félagsmanna viđ undirbúning kröfugerđar og kallar eftir atvikum á fulltrúa ţeirra til ráđgjafar viđ samningagerđina.
Formađur félagsins í umbođi Kennarasambands Íslands ber ábyrgđ á undirritun kjarasamninga fyrir félagsmenn og gerđ og undirritun viđrćđuáćtlana vegna endurnýjunar ţeirra.
Formađur og / eđa varaformađur Kennarasambands Íslands starfa međ samninganefndinni eftir nánari ákvörđun stjórnar félagsins hverju sinni
Skólamálanefnd 17. gr.
Starfandi skal vera sjö manna skólamálanefnd sem sinnir faglegum málefnum fyrir félagsmenn. Ađalfundur kýs sex fulltrúa og fimm til vara en stjórn Félags grunnskólakennara skipar formann. Hlutverk skólamálanefndar er:
Ađ fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráđi viđ stjórn félagsins og skólamálaráđ,
ađ vinna ađ eflingu kennaramenntunar og endurmenntunar félagsmanna,
ađ annast tengsl viđ fagfélög og sambćrilegar nefndir annarra uppeldisstétta.
Uppstillingarnefnd 18. gr.
Á ađalfundi félagsins skal kjósa ţriggja manna uppstillingarnefnd og ţrjá til vara. Hlutverk hennar er ađ leggja fram tillögur um frambjóđendur til kjörs formanns, međstjórnenda, fulltrúa í stjórn Kennarasambandsins, skođunarmanna reikninga, fulltrúa í samninganefnd, skólamálefnd, uppstillingarnefnd og til annarra trúnađarstarfa sem ađalfundur kýs. Áđur en nefndin leggur fram tillögur um frambjóđendur skal liggja fyrir samţykki viđkomandi einstaklinga. Uppstillingarnefnd skal leitast viđ ađ fá fleiri frambjóđendur en kjósa skal. Viđ uppstillingu í trúnađarstörf á vegum félagsins skal og leitast viđ ađ tryggja jafnrćđi.
Í ţađ minnsta 6 mánuđum fyrir ađalfund auglýsir uppstillingarnefnd eftir frambjóđendum. Tillögur skulu berast nefndinni eigi síđar en 2 mánuđum fyrir ađalfund.
Auglýsingar um frambođ til trúnađarstarfa skal senda stjórnum svćđafélaga og trúnađarmönnum sem ber skylda til ađ kynna ţćr félagsmönnum í viđkomandi skólum. Auglýsingar skulu liggja frammi í a.m.k. einn mánuđ áđur en frambođsfrestur rennur út. Jafnframt skal auglýsa eftir tillögum í félagsblađi og á heimasíđu KÍ.
Tillögur uppstillingarnefndar um frambjóđendur skulu sendar ađalfundarfulltrúum a.m.k. einum mánuđi fyrir ađalfund.
Uppstillingarnefnd setur sér nánari starfsreglur sem stađfestar skulu af stjórn félagsins.
Allsherjaratkvćđagreiđsla um kjarasamninga, bođun verkfalls o.fl. 19. gr.
Um kjarasamninga og bođun verkfalls skal fara fram leynileg, skrifleg allsherjaratkvćđagreiđsla međal félagsmanna, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Kjörskrá skal miđa viđ félagatal í ţeim mánuđi sem atkvćđagreiđsla fer fram. Stjórn félagsins getur efnt til allsherjaratkvćđagreiđslu um önnur mikilvćg málefni sem eigi falla sérstaklega undir ađalfund.
Lagabreytingar 20. gr.
Lögum ţessum má breyta á ađalfundi félagsins enda hafi breytingarnar veriđ kynntar í fundarbođi. Tillögur um lagabreytingar ţurfa ađ hafa borist stjórn átta vikum fyrir ađalfund og skulu ţćr kynntar ađalfundarfulltrúum eigi síđar en ţrem vikum fyrir ađalfund. Til ţess ađ breyting nái fram ađ ganga verđur hún ađ hljóta samţykki 2/3 hluta greiddra atkvćđa. Breytingar á lögum koma fyrst til framkvćmda er stjórn Kennarasambands Íslands hefur stađfest ţćr.
Gildistaka 21. gr.
Lög ţessi öđlast gildi ţegar stjórn Kennarasambands Íslands hefur stađfest ţau.
Samţykkt á 2. ađalfundi Félags grunnskólakennara 7. mars 2002 |