Þriðjudagur 7. september 2010
AðalsíðaSjóðir KÍSpjalliðFundargerðirMenntaráð Reykjavíkur
 
Efni
 
Póstlisti
 
Nemendaferðir - greiðsla fyrir umsjón og lágmarkshvíld.

Margar spurningar berast varðandi nemendaferðir og þá sérstaklega hvernig greitt er fyrir ferðir annars vegar og hins vegar varðandi ákvæði um lágmarks hvíldartíma.

Mikilvægt er að blanda ekki saman þessum tveimur atriðum.

Greitt er fyrir nemendaferðir samkvæmt grein 2.3.9 í kjarasamningi en þar segir:

„Fyrir umsjón í nemendaferðum, sem skipulagðar eru sem hluti af starfi grunnskóla, skal greiða allt að 12 klukkustundir á dag að frádregnum fjöldakennslustunda á stundaskrá viðkomandi kennara á ferðadegi. Standi ferð yfir nótt greiðast að auki 3 klukkustundir.“

 

Séu engar kennslustundir samkvæmt stundaskrá á ferðadegi dragast að sjálfsögðu engar kennslustundir frá 12 tímunum. Greitt er fyrir þessar ferðir með yfirvinnu og er mjög mikilvægt að semja um greiðslu fyrirfram.

 

Varðandi ákvæðið um lágmarks hvíldartíma þá ber að veita starfsmanni á hverjum 24 klukkustundum 11 klukku-stunda samfellda hvíld, samkvæmt EES tilskipun sbr. grein 2.4.1.1. í kjarasamningi.

 

Í rammagrein með kjarasamningi segir:

 

„Mest reynir á ákvæði um lágmarkshvíld í tengslum við félagsstarf í skólum og ferðir nemenda. Mikilvægt er að haga skipulagi félagsstarfs og nemendaferða þannig að ekki verði gengið á svig við lágmarkshvíldarákvæði eða önnur ákvæði vinnutímasamningsins. Ef kennari verður vegna ófyrirséðra aðstæðna að standa lengri vinnulotu en 13 klst. af óviðráðanlegum ástæðum ber honum í kjölfarið 11 klukkustunda lágmarkshvíld. Ekki er heimilt að skipuleggja brot á lág-markshvíldarákvæðum og bjóða kennara frítökurétt í staðinn eða greiðslur í stað hvíldar. Foreldrar mega vænta þess að ákveðin gæsla sé á börnum þegar þau eru á vegum skóla við nám, í félagsstarfi eða á ferðalögum. Sú gæsla gæti verið innt af hendi af kennurum skólans, skólaliðum eða öðrum aðilum. Mikilvægt er að leita leiða til að leysa þessi mál með skynsamlegum hætti.”

 

En fari hins vegar svo að kennari nái ekki sinni 11 klukkustunda samfelldu hvíld myndast frítökuréttur sem er 1,5 klukkustund fyrir hverja þá klukkustund sem hvíldin skerðist um. Þannig á kennari sem fær aðeins 9 klukkustunda hvíld, 3 tíma frítökurétt út á þessar 2 klukkustundir sem vantaði upp á 11 klst. samfellda hvíld. Það ber þó að ítreka að ekki á að skipuleggja ferðir þannig að vitað sé fyrirfram að kennari fái ekki 11 klst. samfellda hvíld.


Til baka
 
Á döfinni
Enginn atburður á skrá
 
Könnun
Leggst veturinn vel í þig?

nei
sennilega
veit ekki

 
OZON-Vefumsjónarkerfið
KFR - Kennarafélag Reykjavíkur - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - Sími: 595-1111