Til borgarstjóra Reykjavíkur, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
Ályktun frá almennum starfsmannafundi í Langholtsskóla 14. 04. 2009, vegna fjárhagsáćtlunar Reykjarvíkurborgar fyrir 2009.
Ţriđjudaginn 31. mars 2009 var fjárhagsáćtlun Reykjavíkurborgar fyrir áriđ 2009 samţykkt. Í tölvubréfi frá borgarstjóra til starfsmanna borgarinnar, dagsettu 3.04.2009 stendur: „...Endurskođuđ fjárhagsáćtlun fyrir áriđ 2009 var samţykkt á fundi borgarstjórnar síđastliđinn ţriđjudag. Markmiđum hagrćđingar var náđ og var ţví fagnađ sérstaklega.“
Á heimasíđu Reykjavíkurborgar (http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1066/521_read-14636/, fréttatorgi 1.04.2009 ), birtist eftirfarandi frétt frá borgarstjórn: „...Markmiđ viđ endurskođun fjárhagsáćtlunar var ađ hagrćđa um rúma 2,3 milljarđa kr. í samrćmi viđ samţykkta fjárhagsáćtlun og međ ţví ađ standa vörđ um grunnţjónustu viđ íbúa borgarinnar, störf borgarstarfsmanna og gjaldskrár. Ţessi markmiđ hafa nú náđst og er ţví fagnađ sérstaklega, um leiđ og öllu ţví fjölmarga starfsfólki Reykjavíkurborgar sem kom ađ vinnunni er ţakkađ fyrir vel unnin störf.“
Á starfsmannafundi sem haldinn var í Langholtsskóla 14. 04. 2009 kynnti skólastjóri fyrirhugađar ađgerđir sem grípa ţarf til vegna nýsamţykktrar fjárhagsáćtlunar. Skólum borgarinnar verđur gert ađ skera umtalsvert niđur. Í Langholtsskóla lítur út fyrir ađ hópur fastráđinna starfsmanna, sérstaklega kennara, missi störf sín frá og međ nćsta hausti.
Augljóst er ađ ţessu gefnu ađ borgarstjórn Reykjavíkur hefur ekki stađiđ vörđ um störfin í borginni. Starfsmenn Langholtsskóla lýsa furđu sinni á ósamrćmi milli ađgerđa sem grípa ţarf til vegna fjárhagsáćtlunarinnar og orđa borgarstjórnar og borgarstjóra um ađ markmiđum hafi veriđ náđ. Viđ krefjumst skýrra svara međ hvađa hćtti störfin verđa varin.
Samţykkt einróma á fundi starfsmanna Langholtsskóla.