Fulltrúar KÍ í viðræðum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, sem nú standa yfir, lögðu fram yfirlýsingu á fundi aðila í dag. Yfirlýsingin er lögð fram í ljósi frétta og viðtala um að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti nú öllum ráðum til að fá stjórnvöld til að breyta grunnskólalögum með það að markmiði að skerða laun um 5%. Fulltrúar KÍ telja ekki heiðarlegt að sitja við samningaborð og leita sameiginlegra lausna meðan einn aðili þess samráðs nýtir tímann til að fá löggjafann í lið með sér í tilraunum sínum til að skerða kjör.
Hér er yfirlýsingin:
Yfirlýsing frá Kennarasambandi Íslands 22. maí 2009
Vegna áframhaldandi vinnu við sameiginlegt borð aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda vill Kennarasambands íslands koma eftirfarandi á framfæri.
Í ljósi tilrauna Sambands íslenskra sveitarfélaga til að fá Alþingi til að gera breytingar á grunnskólalögum í þeim tilgangi að skerða laun um 5% er sjálfgefið að KÍ getur ekki á sama tíma setið við sameiginlegt samningaborð með það að markmiði að leita sameiginlegra lausna. Áðurnefnd breyting á lögum er inngrip í kjarasamning en ákvæði laga og kjarasamnings eru samhljóða.
Áðurnefnd breyting á lögum hefði eftirfarandi í för með sér auk skerðingar á launum:
Dögum sem foreldrar þurfa að greiða fyrir gæslu yngri nemenda fjölgar um 10 á ári sem þýðir auknar álögur á foreldra til viðbótar við þá kjaraskerðingu sem þegar er orðin.
Árlegum kennslustundum í unglingadeildum fækkar um nálægt 75.
Ef þessi skerðing á kennslu kæmi til framkvæmda stríddi það gegn niðurstöðu félagsdóms í máli 4/2009 frá 12 maí sl.
Kennarasamband Íslands mun taka afstöðu til áframhalds í sameiginlegri vinnu fyrir 29. maí og mun afstaðan fyrst og fremst taka mið af framvindu þessa máls.
Verði gerð breyting á lögum í þessa veru eftir að aðilar hafa náð saman við sameiginlegt borð telur KÍ sig óbundið af slíku samkomulagi.