Þriðjudagur 7. september 2010
AðalsíðaSjóðir KÍSpjalliðFundargerðirMenntaráð Reykjavíkur
 
Efni
 
Póstlisti
 
Fréttir
26. maí 2009
Er það grunnþjónusta að hugga barn?

GEÐLÆKNIR sem vinnur með börnum sagði mér um daginn að hann og starfsfélagar hans ættu von á að sjúklingum fjölgaði mikið næsta vetur. Ástæðan? Niðurskurður í skólakerfinu. Það væru því miður farnar að berast fregnir af því, sagði læknirinn, að börn sem stæðu höllum fæti fengju ekki þann stuðning sem þau þyrftu. Niðurskurður væri hafinn og ætti eftir að aukast. Afleiðingar væru væntanlegar innan tíðar.

Ég velti því fyrir mér í framhaldi af þessum orðum hvernig við skilgreinum grunnþjónustu. Mikið er rætt um að standa vörð um hana á öllum skólastigum og í þau fáu skipti sem stjórnmálamaður minnist á skólamál dregur hann þetta orð gjarnan upp úr pússi sínu. En hvað er grunnþjónusta? Er það grunnþjónusta að öll börn læri að draga til stafs í fyrsta bekk grunnskóla? Hvað með að hugga grátandi barn, er það grunnþjónusta? En að gefa sér tíma til að setjast með nemanda og ræða við hann um skólareglurnar eða undraheim náttúrunnar - er það grunnþjónusta? Er það grunnþjónusta að hlæja með nemendum? Hvað með að borða saman, er það grunnþjónusta?

Ég er ekki viss um að þegar ráðamenn sletta orðinu grunnþjónusta eins og skyri framan í kennara hugsi þeir út í það að skólinn er annað heimili barna og ungmenna.

Hér eru þau fimm til níu klukkustundir á dag. Það gildir um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Og tónlistarskólinn, þar eignast mörg börn og ungmenni góðan vin og lærimeistara á fullorðinsaldri. Stundum þann eina sem þau geta leitað til. Þetta er engin vitleysa, ég veit um mörg dæmi þessa. Það er ekki víða sem börn hafa aðgang að fullorðinni manneskju án þess að þurfa að berjast við sjónvarp, síma, tölvu eða tuttugu önnur börn um athyglina en tónlistarskólakennarinn er slík manneskja. Kennarar, skólaritarar, hjúkrunarfræðingar, matráðar, námsráðgjafar, skólastjórar, skólaliðar - í öllum þessum hópum og öðrum í skólaumhverfinu er að finna trúnaðarvini og lærimeistara mikils fjölda nemenda. Það er mikilvægt að halda í allt þetta góða fólk og láta það fá tíma til að vinna sín góðu verk. Ef álag, undirmönnun og niðurskurður er dagskipanin í skólum líða börnin, þau verða veik, andlega vanhirt og ná ekki að verða fullnuma. Ég ætla ekki að hafa um þetta mörg fleiri orð að sinni. En það hryggir mig að fullorðið fólk skuli mala um grunnþjónustu í staðinn fyrir að hugsa í ró og næði um guðsþjónustuna sem kennarar láta nemendum í té á hverjum virkum degi. Það er þjónusta við sterk og viðkvæm goðmögn, börnin sem eru fullkomin í sjálfu sér en þurfa samt sárlega á leiðsögn okkar, kennslu og vináttu að halda.

KRISTÍN ELFA GUÐNADÓTTIR, ritstjóri.




Til baka
 
Á döfinni
Enginn atburður á skrá
 
Könnun
Leggst veturinn vel í þig?

nei
sennilega
veit ekki

 
OZON-Vefumsjónarkerfið
KFR - Kennarafélag Reykjavíkur - Laufásvegi 81 - 101 Reykjavík - Sími: 595-1111